Um Pétur
Pétur sinnir sálfræðimeðferð, handleiðslu og ráðgjöf fyrir ungmenni og fullorðna einstaklinga. Hann vinnur mikið með kvíða, vanlíðan, sjálfstyrkingu, tilfinningastjórn, streituþolsfærni, félagsfærni og foreldraráðgjöf.
Hann starfar einnig sem sálfræðingur í Klettabæ þar sem hann vinnur með ungmennum með fjölþættar þjónustuþarfir, foreldrum þeirra og starfsmönnum. Þessar þjónustuþarfir geta falið í sér taugaþroskaraskanir eins og einhverfu, tengslavanda, hegðunarvanda, félagslega einangrun, áhættuhegðun sem og tilfinningalegar og geðrænar áskoranir. Í Klettabæ hefur Pétur sérhæft sig í fjöláfalla- og tengslamiðuðum stuðningi
Áhersla:
Ungmenni, einstaklingar, hegðunarvandi, félagsleg einangrun, sjálfstyrking, vanlíðan, sjálfstjórn, fjöláfalla- og tengslamiðaður stuðningur, foreldraráðgjöf.
Pétur lauk B.Sc. í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 2010 og Cand.psych. prófi frá Háskólanum í Kaupmannahöfn með áherslu á klíníska sálfræði árið 2012.
Pétur tekur viðtöl í Sálfræðihúsinu, Bæjarhrauni 8, alla fimmtudaga.
Hafa samband
Ertu með spurningar eða viltu fá frekari upplýsingar? Ekki hika við að hafa samband. Hægt er að senda tölvupóst á petur@stofanokkar.is eða fylla út formið hér á síðunni. Öllum fyrirspurnum er svarað eins fljótt og auðið er.
Hægt er að bóka tíma hér.