Sálfræðingur veitir faglega aðstoð við andlega líðan, hugsanir, tilfinningar og hegðun. Í samtali er unnið að því að skilja aðstæður, styrkja færni og finna leiðir sem geta stuðlað að betri líðan og auknum skilningi á sjálfum sér.
Fyrir hverja er sálfræðimeðferð? Sálfræðimeðferð er fyrir fólk á öllum aldri sem vill fá stuðning, vinna með áskoranir eða kynnast sjálfu sér betur. Hún er bæði fyrir þau sem glíma við vanlíðan og þau sem vilja efla lífsgæði og seiglu.
Þarf ég að vera „mjög illa haldin/n“ til að leita til sálfræðings?Nei. Það er ekki skilyrði að vera í krísu. Margir leita til sálfræðings vegna streitu, óvissu, samskiptaerfiðleika eða til að fá skýrari sýn á aðstæður í lífi sínu.
Hvað er algengt að fólk leiti til sálfræðings út af?Algengar ástæður eru kvíði, depurð, streita, kulnun, áföll, sambandsvandi, sjálfsmynd, sorg, lífsbreytingar eða erfiðleikar í daglegu lífi. Ástæður geta verið margar og oft fléttast þær saman.
Er eðlilegt að vera kvíðin/n fyrir fyrsta viðtal? Já, það er mjög algengt. Fyrsta viðtal felur í sér að hitta ókunnan einstakling og tala um persónuleg málefni. Markmið fyrsta viðtals er að skapa öryggi og traust, og farið er á þínum hraða.
Er hægt að mæta bæði í staðviðtal og fjarviðtal?Já, það er boðið upp á bæði staðviðtöl og fjarviðtöl. Hægt er að ræða saman hvaða form hentar þér best.
Hvernig fer fyrsta viðtal fram? Í fyrsta viðtali er farið yfir hvað hefur leitt þig í meðferð, núverandi stöðu og hvað þú vonast til að fá út úr viðtölunum. Áhersla er á að kynnast og skapa öruggt samtalsrými. Þú ræður hversu mikið þú vilt deila.
Má skipta um sálfræðing? Já. Það er mikilvægt að þú upplifir traust og öryggi í meðferð. Ef sambandið hentar ekki er eðlilegt að ræða það og mögulegt að skipta um sálfræðing.
Er allt sem ég segi trúnaðarmál?Já. Sálfræðingar eru bundnir þagnarskyldu og allt sem fram fer í viðtali er trúnaðarmál. Undantekningar eru aðeins ef um er að ræða alvarlega hættu, samkvæmt lögum og siðareglum.
Hvað ef ég veit ekki hvað ég á að segja? Það er allt í lagi. Margir upplifa óvissu um hvar eigi að byrja. Sálfræðingur styður þig í að finna orð og skýra hvað er mikilvægt að skoða.
Hvað ef vandinn minn „er ekki nógu stór“?Enginn vandi er of lítill. Ef eitthvað hefur áhrif á líðan þína eða daglegt líf er það næg ástæða til að leita sér stuðnings.
Get ég talað um allt, líka það sem mér finnst vandræðalegt?Já. Viðtöl eru öruggt rými þar sem hægt er að tala um það sem er erfitt, flókið eða vandræðalegt. Sálfræðingur mætir því án dóms.
Hjálpar það virkilega að tala? Fyrir marga hjálpar það að fá rými til að setja orð á upplifun, skilja mynstur og fá stuðning. Samtölin ein og sér, ásamt markvissri vinnu, geta leitt til breytinga í líðan og daglegu lífi.