Pétur Örn Svansson sálfræðingur kvíði þunglyndi áföll Hafnarfirði Hafnarfjörður

Sálfræðiþjónusta fyrir fullorðna

Pétur Örn Svansson hefur í fjölda ára sinnt meðferðum fullorðinna.

Sálfræðiþjónusta fyrir fullorðna miðar að því að styðja við andlega líðan, sjálfsskilning og jákvæðar breytingar í daglegu lífi.

Viðtöl fara fram í öruggu rými þar sem lögð er áhersla á fagmennsku, hlýju og persónulega nálgun. Markmiðið er að veita faglegan og persónulegan stuðning og þannig skapa rými til að vinna með áskoranir, efla bjargráð og styrkja einstaklinga í lífi og starfi.

Hvenær er gagnlegt að leita til sálfræðings?

Fólk leitar til sálfræðings af ýmsum ástæðum. Algengt er að leita stuðnings þegar:

  • Kvíði, streita eða álag hefur áhrif á líðan og daglegt líf

  • Erfitt reynist að stýra tilfinningum eða takast á við áreiti

  • Áskoranir tengjast foreldrahlutverkinu eða fjölskyldulífi

  • Lífskreppur, breytingar eða erfiðar aðstæður kalla á stuðning

  • Þörf er á auknum sjálfsskilningi og styrkari sjálfsmynd

  • Álag í vinnu eða einkalífi hefur áhrif á jafnvægi og vellíðan

Einnig er algengt að fólk leiti í viðtöl til að efla persónulegan þroska og bæta líðan, jafnvel án þess að um skýran vanda sé að ræða.

Áherslur í meðferð

Í viðtölum er unnið m.a. með:

  • Kvíða og streitu

  • Tilfinningastjórnun og bjargráð

  • Foreldrahlutverkið og samskipti innan fjölskyldu

  • Sjálfsskilning og sjálfsmat

  • Jafnvægi milli vinnu og einkalífs

  • Persónulegan þroska og vellíðan

Meðferð er einstaklingsmiðuð og byggir á gagnreyndum aðferðum, þar sem áhersla er lögð á að finna leiðir sem nýtast í daglegu lífi. Unnið er í sameiningu að skýrum markmiðum og á þeim hraða sem hentar hverjum og einum.

Hvernig fara viðtöl fram?

Viðtöl eru 50 mínútur og fara fram í trúnaði. Markmið þeirra er að greina klíniskan vanda, skapa rými til að skoða það sem er að valda álagi eða vanlíðan og finna leiðir sem styðja við aukið jafnvægi og vellíðan. Áhersla er lögð á traust samstarf, virka hlustun og faglega leiðsögn.

Ekki þarf tilvísun til að bóka tíma hjá sálfræðingi.